Það er sem sagt af nógu að taka. Hópurinn sem ég skráði mig í á dietbet er í gangi í 6 mánuði, en þó er hægt að koma inn í hann hvenær sem er. Krafan er sú að ég léttist um 3% fyrsta mánuðinn en við að ná því markmiði fer ég að fá verðlaun. Það eru þennan mánuðinn 979 manns í mínum potti og verðlaunaféið í rúmlega 12 þúsund dollurum sem skiptist síðan á milli þeirra sem ná sínum markmiðum. Þetta virkar afskaplega spennandi og uppsetningin skemmtileg á þessu, allavega finnst mér það ennþá á 3 degi.
Aðrar mælingar eru svona:
Fituprósenta
Ég pantaði mér þrennt frá vaxtavörum og fékk ég vörunar í morgun. Ég byrjaði því að nota þessi fæðubótarefni í dag.
Það sem ég keypti var:
Thermo Speed Hardcore
Sterkar brennuslutöflur frá Olimp
Fullkomin samsetning innihaldsefna
Mega caps (Jafnast við 240 venjuleg hylki)
2 mánaða skammtur
S.A.W - orka fyrir æfingu
Fullkomin samsetning innihaldsefna
Mega caps (Jafnast við 240 venjuleg hylki)
2 mánaða skammtur
S.A.W - orka fyrir æfingu
Brjáluð orka og brennsla, aukin vöðvamassi, styrkur og úthald
EKKI FYRIR YNGRI EN 18 ÁRA
Ertu að æfa grimmt? Ertu búinn að prufa allar blöndurnar og þær eru bara ekki að skila þeim árangri sem þú áttir von á? Er þá ekki kominn tími á bestu vöruna á markaðnum: S.A.W
Prótein
Loksins! Hágæða mysuprotein á frábæru verði, sérstaklega hannað fyrir bragðlaukana.
EKKI FYRIR YNGRI EN 18 ÁRA
Ertu að æfa grimmt? Ertu búinn að prufa allar blöndurnar og þær eru bara ekki að skila þeim árangri sem þú áttir von á? Er þá ekki kominn tími á bestu vöruna á markaðnum: S.A.W
Prótein
Whey 100 600g 20 Skammtar
- Besta próteinið til að byggja vöðva
- Fullt af frábærum brögðum
- 100% hreint mysuprótein
- Aðeins 1.7g Kolvetni þar af 0.2g sykur
- Enginn Laktósi
Það verður spennandi að sjá hvernig þetta gengur. Vonandi hætti ég bara ekki að sofa vegna allra þessara auka orku sem ég er að éta.
Á morgun ætla ég að skella inn myndum af líkamsstöðugreiningu sem ég er að vinna með myndum af mér. Ég get bara sagt það strax að líkamleg staða mín er hræðileg og afskaplega margt sem þarf að hafa í huga þegar ég vel mér æfingar til að gera í kjölfarið. En allt er hægt að laga, ef maður bara heldur sér við efnið og er duglegur!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli